Bless!
Mikið að ské..eða?
Jæja vegna ,,fjölda" áskorana um að blogga ætla ég að gera það snöggvast!Þegar ég vaknaði í morgun var kominn líka þessi fíni jólasnjór svo langt sem augað eygði, Gissur fór ekki í skólann af því að hann nennti ekki að skafa;) Ég er ekki frá því að ég hafi komist í nett jólaskap og langar mest til þegar ég er búinn í skólanum að fara heim að baka!
Í fyrsta skipti í margar vikur eru kennarar ekki búnir að hrúga á mann heimanámi eða prófum þessa vikuna, þannig að ég held að þetta verði bara mikil tjill vika;) Svo er söngvakeppni á morgun og ég sauðurinn er ekki ennþá búinn að ákveða hvort ég ætli að fara.
Ég fór í vinnuna á föstudaginn og mætti galvösk. Gleðin fór samt fljótt af mér þegar ég sá að 80 manna hópur frá Lögréttu átti pantað. Semsagt lögfræðinemar. Þetta byrjaði nú rólega en þegar leið á kvöldið hagaði þetta blessaða fólk sér eins og það væri bara 12 ára á gelgjunni. Til dæmis þá má ekki reykja inni og það var alltaf EINN sem reykti inni og ég viðsamlega bað hann um að fara út að reykja. Nei kom þá ekki kauði og ætlaði að drepa í sígarettunni á hendinni á mér! Svona gekk þetta og ég hirti öruglega af honum pakka nema í einni drap hann í desertköku sem ég var að fara með á gólfið. Þá missti ég það á endanum og fór bara inn í næsta sal að þrífa. Þegar ég var þar þá skelltu einhver tvö sér inn á klósett og maður var nú ekki lengi að átta sig á hvað væri í gangi þar. En seinna kom í ljós að stelpan var á föstu og kærastinn hennar var bara inni að dansa þegar hún var í góðu gamni inni á klósti! Já en þetta er sko ekki búið. Þegar þau loksins komu út af klósettinu þá heyrði ég Odda (eigandan) öskuvondan hinu megin við hurðina. Þá var einn gaurinn búinn að pissa inni á hurðina. Já PISSA! Ég á ekki orð. Þetta á að heita fullorðið fólk og afsökunin sem hann kom með var að hann hefði ekki fundið klósettið. Þá ákvað maðurinn að pissa bara inni. Á endanum var öllum hennt út og pissugaurinn fór að grenja. Þetta var alveg hræðilegt kvöld og ég var gjörsamlega búinn á því þegar ég kom heim.
Svo á laugardaginn fór ég á móti sól ball og það var bara mjög fínnt. Skemmti mér alveg ágætlega þar.
En hey það nennir enginn að lesa þetta langa og leiðinlega blogg hjá mér þannig að ég segi bara bless;)
HarpaÍs
leiðinleg vika
jæja þessi vika er búinn að vera BOOOORRRIIINNNGGGG!! Búinn að vera veik heima í 3 daga og ekki búinn að gera rassgat!Síðast helgi var samt fín. Halloween ball sem ég skemmti mér konunglega á með stelpunum mínum:)

Ég og Sunna í góðu glensi með Halldóru og Helgu...!! Ég gat nottla ekki haft augun opinn!
Á laugardaginn vaknað ég snemma og skellti mér inn á fjöll og kom heim aftur á Sunnudaginn.Fór á fjórhjól og knúsaði tvíburana! Ekkert betra en að vera þarna í hreina og fína loftinu:)
En vá ég missti allt í einu viljann til að blogga í bili;)
Þangað til næst sykurpúðar;)
HarpaÍs
well, well
Þar sem líður að HALLOWEEN balli ( á morgun) er ég í gasalegum vandræðum. Vegna mikils hópþrýstings ætla ég ef til vill að reka nefið inn á þetta ball en STÓRA spurningin er: Í HVERJU Á ÉG AÐ VERA??? Ég verð mjög asnaleg ef ég kem ekki í búning smúning.....
bleeee

Harpa clueless;)
,,,
Þar sem ég nenni ekki að blogga í dag, ætla ég að láta ykkur gera það fyrir mig;)1. Hvað kallarðu mig?
2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?
12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
13. Hvernig stráka fíla ég?
14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
15. Hvað er mest einkennandi við mig?
16. Hvaða búðir elska ég að fara í?
Og allir að svara!!
Jæja...
Hvernig væri nú að blogga aðeins og sjá hvort einhver nenni að lesa þessa síðu!Allavega þá er skólinn byrjaður á fullu og ég sem ætlaði sko aldeilis að vera dugleg og byrja strax á fullu, en það hefur ekki gengið ALVEG eftir!!
Svo er ég að vinna örlítið á Fjöró, því maður er nottla að fara til Köben og verður víst að eiga einhvern pening þar.
Ég var bara búin snemma í skólanum í dag og fór heim og alveg steinsofnaði.
Svo var ég að fá heldur óskemmtilegar fréttir rétt áðan en vonandi fer það á besta veg. Það getur verið alveg þvílík eftirsjá í því að hafa ekki gert eitthvað einhverntíman og fær svo kannski ekki tækifæri til þess aftur.
En réttir eru á föstudaginn og auðvitað fer maður þangað. Pabbi kallinn á fjalli 50. árið í röð þannig að það er eiginlega skyldumæting.
Svo má ekki gleyma að það er 11. september og ég man sko nákvæmlega hvar ég var stödd um 1 leytið fyrir 5 árum þegar árásirnar voru gerðar. Þannig kom til þessi flughræðsla mín. Ég bara skil ekki hvernig stálklumpur fullur af fólki getur flogið um loftin blá eins og ekkert sé. þótt að það eigi að vera öruggasti ferðamátinn. Annars ætla ég nú ekkert að fara að tjá mig um mína eðlisfræðivsku enda er hún ekki ýkja mikil!
Annars er ég búin að stúta fyrstu seríunni af 24 síðustu 3 daga og ég verð bara að segja að þetta eru bestu þættir í heimi. Jack Bauer félagi minn sko!!
En vá nóg af bulli sem ég skrifa bara öruglega fyrir sjálfa mig, er einhver að lesa???
29. maí
Jæja stutt blogg. Styttist í pay day og vonandi fær maður sæmilega summu.En aðal ástæðan fyrir þessu bloggi er að Dagný systir og Gunnar eignuðust tvíbura í morgun:) Strák og stelpu. Æðislegt og allt gengur voða vel!!
Era að fara í bæinn áeftir og kíkja á þau.... get ekki beðið
Adios HarpaÍs
jæja blogga??
LOksins er maður búinn í prófum og á eftir að fá út úr þremur.. svoldið óþolinmóð sko!!Á föstudaginn skellti ég mér á lokaball sem er ekki frásögu færandi nem ég kom sjálfri mér á óvart með einhverju sem við skulum ekkert vera að nefna hér;) hehe En þetta var alveg ágætt ball sko, mikið af fólki og svona.
Laugardagurinn var bara rólegur þangað til ég fór að vinna á Fjöró og það var nú meira andskotans ruglið. Allt í rugli skal ég segja ykkur. 40 fullar kellingar og nöldrandi fjölskylda.
En ég nenni ekki að skrifa meira af ómerkilegum hlutum!
Adios
Harpa fighter;)
...
Herbert Granz hefur verið ofarlega í huga mér síðustu daga, en hann kvaddi þennan heim fyrir rúmri viku.Ég kynntist Hebba í gegnum Gissur og strákana og hann var alveg yndislegur strákur. Síðustu faga hafa verið að koma upp í hugann löngu horfnar minningar, eitthvað semég héllt að ég væri löngu búinn að gleyma.
Hann var alltaf hress og alltaf kom eitthvað spugilegt upp úr honum eins og t.d þegar ég og Gissur skutluðum honum í bæinn á konudaginn í fyrra. Þá spurði Gissur hvort hann hefði ekki gefið kærustinni blóm eða eitthvað en þá sagði Hebbi ,, nei ég gaf henni bara skyrdrykk í rúmið það er alveg nóg!"
Svo þegar hann keypti einhvern rándýran leikfangariffil á þjóðhátíð bara svo að hann gæti látið geyma hann í geymsluplássinu!
Elsku Hebbi hvíldu í frið og ég mun aldrei nokkurn tíma gleyma þér..
